03.05.1984
Sameinað þing: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5150 í B-deild Alþingistíðinda. (4518)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 3. maí 1984.
Guðmundur Bjarnason, 6. þm. Norðurl. e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., Níels Árni Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ingvar Gíslason, forseti Nd.“
Níels Árni Lund hefur áður setið á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa á ný.
Að till. forseta var ákveðin ein umr.