04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5369 í B-deild Alþingistíðinda. (4669)

123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Sú breyting sem ríkisstj. gerir till. um með þessari grein gengur út á að lækka lánahlutfall til verkamannabústaðanna úr 90% í 80% af kostnaðarverði. Ég er andvígur þessari hugmynd og flyt þess vegna þá brtt. sem hér er til atkv. Fari svo að till. mín verði felld mun það hafa það í för með sér að verkamannabústaðakerfinu hefur verið stórkostlega spillt frá því sem verið hefur. Ég mun af þeim ástæðum sitja hjá við lokaafgreiðslu þessa frv. í heild. En ég segi já við þessari till.