07.05.1984
Sameinað þing: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5417 í B-deild Alþingistíðinda. (4680)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. maí 1984.

Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Bjarni Guðnason prófessor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn kjörbréfs varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Bréfi þessu fylgir kjörbréf Bjarna Guðnasonar sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi.

Einnig hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. maí 1984.

Geir Gunnarsson, 5. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Reykjaneskjördæmi, Elsa Kristjánsdóttir bankastarfsmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.

Gætir nú ekki samræmis í hér, en þessi framvísun milli forseta hygg ég að geti nú samt sem áður gengið því að með bréfi þessu fylgir kjörbréf Elsu Kristjánsdóttur sem 1. varaþm. Alþb. í Reykn.

Ég leyfi mér að biðja kjörbréfanefnd að taka kjörbréf þessi til rannsóknar, kjörbréf Bjarna Guðnasonar og Elsu Kristjánsdóttur, og fundinum er á meðan frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]