08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

457. mál, byggingarkostnaður við Útvarpshúsið

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Á þskj. 20 hef ég einnig leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. varðandi byggingarkostnað við Útvarpshúsið. Fsp. hljóðar svo:

„1. Hve miklu fjármagni hefur verið varið til byggingar Útvarpshússins?

2. Hver er fjárhæð framkvæmdakostnaðar á árinu 1983?

3. Hvað er fyrirhugað í fjárhæðum til framkvæmda á árinu 1984?"