08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (471)

457. mál, byggingarkostnaður við Útvarpshúsið

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Svarið við 1. spurningunni er þetta: Til byggingar Útvarpshúss hefur verið varið fram til þessa 144 millj. kr. Svarið við 2. spurningunni er: Fjárhæð framkvæmdakostnaðar á árinu 1983 er 65 millj. kr. Og svarið við 3. spurningunni: Fyrirhuguð fjárhæð til framkvæmda á árinu 1984 er 87 millj. kr. Allar þessar tölur eru á verðlagi 1. okt. 1983.