08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

457. mál, byggingarkostnaður við Útvarpshúsið

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinargóð svör og hef raunar ekki miklu við þau að bæta annað en það að mér sýnist að unnið verði fyrir allverulega upphæð á árinu 1984, ef reikna má með að það standi sem nú er gert ráð fyrir, eða um 87 millj. kr. á næsta ári. Það er allmikil upphæð miðað við það sem við sjáum í ýmsum öðrum framkvæmdaflokkum. Ég skal ekki gera það að frekara umræðuefni hér, en ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðh. fyrir greinargóð og stutt svör.