07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5497 í B-deild Alþingistíðinda. (4757)
82. mál, Ríkismat sjávarafurða
Guðmundur H. Garðarsson:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður. Ég vildi aðeins að gefnu tilefni fá, með leyfi forseta, að lesa upp svohljóðandi umsögn frá Félagi sambands fiskframleiðenda, en það mun vera félagsskapur þeirra fiskverkenda sem eru innan vébanda Sambands ísl. samvinnufélaga. Bréfið er svohljóðandi:
„Reykjavík, 23. des. 1983.
Sjútvn. Nd. Alþingis,
Alþingishúsinu v/Austurvöll.
Umsögn um frv. til l. um ríkismat sjávarafurða. Drög að þessu frv. voru send Félagi sambands fiskframleiðenda til umsagnar árið 1982. Stjórn félagsins gerði þá veigamiklar aths. við drögin í bréfi til sjútvrn., dags. 8. des. 1982. Þar sem frv. það, sem nú hefur verið lagt fram, er lítið breytt frá ofannefndum drögum eiga þær aths., sem gerðar voru við drögin, einnig við um frv. og vísast hér með til þeirra. Bent skal þó sérstaklega á að í ofangreindum aths. stendur eftirfarandi:
„Fundarmenn vilja ítreka það álit sitt að í þessum frumvarpsdrögum felst lítið sem leyst geti núverandi vanda sjávarútvegsins varðandi gæðamat. Í núgildandi lögum um Framleiðslueftirlit sjávarafurða finnst engin fyrirstaða gegn því að snúist verði við vandamálunum á raunhæfan hátt.“
Það er enn þá skoðun Félags sambands fiskframleiðenda að það sé fyrst og fremst breyting á starfsháttum sem þarf að verða en ekki breyting á lögum.
Virðingarfyllst.
F. h. Félags sambands fiskframleiðenda.
Árni Benediktsson.“
Ég taldi, herra forseti, nauðsynlegt að þetta kæmi fram í þessari umr.