08.05.1984
Sameinað þing: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5534 í B-deild Alþingistíðinda. (4791)

335. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Forseti (Helgi Seljan):

Ég hafði hugsað mér að reyna að ljúka umr. um þetta dagskrármál, þótt stórt sé, fyrir það þingflokksfundarhlé sem beðið hafði verið um. Ég vil enn freista þess að ljúka umr. um þetta mál, þótt þegar séu þrír á mælendaskrá auk hæstv. iðnrh. Að öðrum kosti hlýt ég að fara að ósk formanns þingflokks Framsfl. og gefa fundarhlé.