09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5575 í B-deild Alþingistíðinda. (4837)

Um þingsköp

Forseti (Stefán Benediktsson):

Samkvæmt því sem ég best veit mun það víst vera kórréttara að beina svona óskum til forseta, en ég vil þá koma því áleiðis til formanns landbn., hv. 11. landsk. þm., að hann verði við þeirri ósk 1. flm. viðkomandi máls að greiða götu þess þannig að það geti komið til afgreiðslu í deildinni.