10.05.1984
Sameinað þing: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5606 í B-deild Alþingistíðinda. (4903)

Um þingsköp

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Hér bættist enn eitt málið í þann mikla seðlabanka sem mál allshn. eru orðin. Vildi ég með leyfi herra forseta biðja hann að mælast til þess við formann þeirrar n., að hann haldi nú sem fyrst fund, þannig að hægt sé að afgreiða eitthvað af þeim málum sem fyrir þessari góðu n. liggja.