08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (493)

395. mál, staðgreiðslukerfi skatta

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Mér er kunnugt um að fyrrv. hæstv. fjmrh. hefur lagt mikla vinnu í frv. um staðgreiðslu skatta, og þó það mál sé ekki á stefnuskrá ríkisstj. að þessu sinni mun ég kanna áhuga fyrir því í ríkisstj. og hvort hún er mér sammála um að það verði tekið upp og lagt fram að nýju.