08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (498)

396. mál, lækkun tolla af tækjabúnaði til sjúkrahúsa

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég ítreka að endurskoðun tollskrár er í gangi og er frágangur á lokastigi. Má segja að hann sé kominn á það stig að málið verði tilbúið senn hvað líður undir prentun. Það tekur hvorki hér né annars staðar mörg ár að framkvæma það sem ég hef tekið að mér.

Þau tæki, sem gefin hafa verið eða keypt til landsins af líknarstofnunum eða góðgerðarfélögum og gefin sjúkrastofnunum, hafa yfirleitt notið þeirra friðinda sem fyrirspyrjandi gat um.