08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (501)

72. mál, gjaldheimta á Suðurnesjum

Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka skýr og greið svör og er viss um að afstaða ráðh. verður til að flýta því að þessi þáttur samstarfs sveitarfélaganna geti hafist sem allra fyrst.