11.05.1984
Efri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5723 í B-deild Alþingistíðinda. (5057)

349. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft þetta mál til meðferðar. Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl. n. var andvígur því ákvæði sem hér er breytt, en hreyfir ekki andmælum við þessari breytingu. Það kom fram við 1. umr. að þetta er nánast tæknilegt atriði við álagningu skattsins núna í ár.