11.05.1984
Neðri deild: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5790 í B-deild Alþingistíðinda. (5117)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég vil láta í ljós ánægju mína með þá leiðréttingu sem kemur fram í þeirri brtt. sem er á þskj. 863 og hv. þm. Páll Pétursson mælti fyrir áðan fyrir hönd fjh.- og viðskn. Ég tel að þetta sé til réttrar áttar, en ég minni aftur á að það er óleyst mál af hálfu þingsins að gera jafnvel við allt gamalt fólk sem er við sömu tekjur. Að öðru leyti er ánægjulegt að þetta skuli þó hafa hafst fram.