14.05.1984
Efri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5824 í B-deild Alþingistíðinda. (5154)

276. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Hér er til umr. á lokastigi frv. til l. á þskj. 865, um breyting á lögum nr. 46 frá 25. apríl 1977, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sbr. lög nr. 35 frá 1976, lög nr. 23 frá 1977, lög nr. 58 frá 1977, lög nr. 61 frá 1977 og lög nr. 22 frá 1981. Frv. þetta hefur fengið afgreiðslu í báðum deildum en kemur til baka frá Nd. með leiðréttingu á þeirri upptalningu sem getið er um í 1. gr. Á ég ekki von á miklum umr. um þetta en legg til að málið verði samþykkt hér á þessu lokastigi umr.