14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5829 í B-deild Alþingistíðinda. (5166)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ingvar Gíslason):

Borist hefur eftirfarandi bréf:

„Alþingi, 14. maí 1984.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sinnt þingstörfum á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Kristjana Milla Thorsteinsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn.“ Kristjana Milla hefur áður setið á þessu þingi og kjörbréf hennar hefur verið rannsakað. Býð ég hana velkomna til starfa á þinginu.