14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5832 í B-deild Alþingistíðinda. (5175)

152. mál, skemmtanaskattur

Frsm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Menntmn. hefur rætt það frv. sem hér liggur fyrir ítarlega á fundum sínum og orðið sammála um að þær breytingar sem á því voru gerðar í Ed. horfi síst til bóta. Er nefndin sammála um að færa frv. til hins fyrra horfs eins og brtt. er um á þskj. 852.