14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5833 í B-deild Alþingistíðinda. (5184)

311. mál, fjölbrautaskólar

Frsm. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Þetta frv. er af sama toga og það frv. sem hér var á dagskrá áðan. N. tekur fram, til þess að taka af öll tvímæli, að hún telji ákvæði frv. eiga við alla framhaldsskóla sem reknir eru með fjölbrautasniði, svo sem framhaldsskólana í Vestmannaeyjum og Neskaupstað og að sjálfsögðu Verkmenntaskólann á Akureyri, og mælir með samþykki brtt. sem hún flytur á þskj. 848.