14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5834 í B-deild Alþingistíðinda. (5189)

317. mál, tollskrá

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 835 um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 120/1976 um tollskrá o. fl. með síðari breytingum. N. hefur athugað frv. og mælir með samþykkt þess. Guðrún Agnarsdóttir, sem sat á fundi n., er einnig samþykk afgreiðslu málsins. Undir þetta rita allir nm. í fjh.- og viðskn.