14.05.1984
Neðri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5834 í B-deild Alþingistíðinda. (5190)

317. mál, tollskrá

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með samþykkt þessa frv. Ég hafði áður flutt frv. í eitthvað þessum sama dúr og undanfarið átt fundi með þeim aðilum sem hér um ræðir ásamt hv. 2. þm. Reykv., Friðriki Sophussyni. Þar sem ekki er heimild til handa fjmrh. til þess að verða við ósk þessara aðila á annan hátt en hér er lagt til að samþykkt verði vil ég lýsa ánægju minni með það að málið er komið á lokastig afgreiðslu.