14.05.1984
Neðri deild: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5888 í B-deild Alþingistíðinda. (5249)

306. mál, skattskylda innlánsstofnana

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 65 19. maí 1982, um skattskyldu innlánsstofnana. Ég vona að hv. þm. virði mér það til betri vegar þó að ég flytji ekki langa framsöguræðu. Þetta mál var lagt fram í Ed. og hefur hlotið þar afgreiðslu á hefðbundinn hátt og legg ég því eingöngu til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.