16.05.1984
Neðri deild: 95. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6053 í B-deild Alþingistíðinda. (5456)

136. mál, hafnalög

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka undirtektir hæstv. félmrh. við mína ábendingu og einnig þau sjónarmið sem fram komu hjá hæstv. samgrh., sem sýnilega hefur talið skynsamlegt að þessi ákvæði væru inni í lögunum og ég mun athuga að taka upp og flytja brtt. við þetta ákvæði við 3. umr. og þá í þá átt að þetta verði fært til þess horfs sem frv. var lagt hér fram.