09.11.1983
Neðri deild: 12. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (549)
70. mál, tóbaksvarnir
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég styð þetta frv. eindregið og finnst gott að það skuli vera komið fram. En ég get ekki varist því að spyrja hvernig hið opinbera getur varið það að hafa tekjur af tóbakssölu um leið og heilbrrh. lýsir notkun þess sem farsótt. Ég veit ekki alveg hvert ég á að beina spurningunni. Ég held að ég beini henni til heilbrrh.