17.05.1984
Efri deild: 104. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6175 í B-deild Alþingistíðinda. (5561)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., lofaði forseta því, en mér fannst ástæða til að benda á að það mun vera heldur seint í rassinn gripið að fylgjast með því nú á næstu vikum og mánuðum hvort sjávarútvegsfyrirtæki þoli þá lánalækkun sem seðlabankatilkynningin gerir ráð fyrir. Það er heldur seint að fara að skoða það eftir á. Slysin hafa ábyggilega orðið áður en sérfræðingar ríkisstj. átta sig á því að það sem nú er verið að gera er rangt. Það má nú þegar gera sér ljóst að útgerð og sjávarútvegur hefur alls ekki efni á því að seðlabankalán séu lækkuð og síst af öllu á sama tíma og verið er að auka bindiskyldu viðskiptabankanna. Og þó að í öðru orðinu sé því lofað að bindiskylda skuli aftur lækkuð finnst manni það skrýtin vinnubrögð að með því frv. sem við erum að ræða hér erum við að tala um að auka bindiskylduna um 10% í hinu orðinu og hæstv. forsrh. lýsir því yfir að það muni verða stefnt að því að lækka bindiskylduna ef í ljós kemur að þessi lækkun hefur vond áhrif í sambandi við rekstur framleiðslufyrirtækja.
Við þetta er ekki miklu að bæta. Hv. 3. þm. Vesturl. sagði það sem segja þarf um þessi mál. Ég vil í einu og öllu taka undir orð hans og fagna því, sem hann sagði í lok ræðu sinnar, að hann mundi huga vel að atkvæði sínu áður en hann gengi frá þessu máli hér í deildinni.