17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6180 í B-deild Alþingistíðinda. (5586)
Um þingsköp
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég ætla að fá að tala um þingsköp. Í þessu tilefni spyr sú sem lítið veit og er ný á vinnustaðnum: Til hvers er verið að setja mál í n. ef það þarf ekkert að fara í n. og hægt er að afgreiða það hér inni? Er það tilfellið? Þarf þetta mál ekki í n.? Hvers vegna var það sent í n. ef það þarf ekki í n.? Hver á níu líf í þessu húsi? Ekki ég, ég á bara eitt.