17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6181 í B-deild Alþingistíðinda. (5592)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það verður að taka það fram í sambandi við þetta að þó að hv. þm. hafi haft orð á því að breytingar hafi komið fram um þetta þá þarf ekki að taka það fram — það er af þeim sökum að þetta mál er hér til einnar umr. — að málinu var breytt í Ed. frá því sem það var afgreitt hér í Nd. og þess vegna var það komið hingað til einnar umr. En það lá engin till. fyrir um það að málinu yrði vísað til n. og þess vegna kom það ekki til að málinu yrði frestað þess vegna.
Hitt er svo annað mál að það kann vel að vera að það séu ástæður fyrir því, eins og nú er komið, að afgreiðsla þessa máls verði tekin upp að nýju. Það er hugsanlegt. Vissulega er hægt að halda því fram að það sé ekki hægt. En allir eiga leiðréttingu orða sinna nema presturinn í stólnum. Það má vel vera að ýmsum finnist að málið hafi verið afgreitt. En ég vil bera það undir deildina hvort það sé nokkur sem hefur á móti því að þetta mál verði athugað nú hjá allshn. og allshn. gefi sitt álit á þessu máli og við höldum svo áfram okkar dagskrá eigi að síður eftir því sem kostur er. Ég vil spyrja hvort nokkur hefur á móti því að það verði gert hér í þessari hv. þd.?