17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6184 í B-deild Alþingistíðinda. (5597)

Um þingsköp

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég óska eftir að þessu máli verði frestað. Ég er ekki með því að vefengja úrskurði eins eða neins, hvorki forseta eða álit einstakra þdm. en ég tel rétt að menn athugi sinn gang og ég óska sem sagt eftir því að málinu verði frestað og tekið fyrir á nýjum fundi.