17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6204 í B-deild Alþingistíðinda. (5610)

155. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Vegna athugasemdar hv. 7. landsk. þm. skal vissulega undir það tekið að það er liðið á nóttu og undanfarin kvöld hafa verið hér langir fundir. Hugmyndin var að ljúka þessari umr. og þau skilaboð fékk ég þegar ég leysti aðalforseta deildarinnar af. Ég skal koma þessari athugasemd þegar í stað á framfæri við aðalforseta deildarinnar og láta vita innan tíðar hvort hægt er að verða við ósk hv. þm.