17.05.1984
Neðri deild: 96. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6208 í B-deild Alþingistíðinda. (5616)

Um þingsköp

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Út af ummælum hv. síðasta ræðumanns vil ég upplýsa að á fundi þingflokksformanna í dag beindi Alþfl. því til annarra flokka að ekki yrði haldinn kvöldfundur í kvöld með tilliti til þess hversu margir kvöldfundir hafa verið haldnir í röð og hafði þá í huga ekki fyrst og fremst heilsufar eða ástand þm. heldur ekki síst það álag sem er lagt á starfsmenn þingsins. Þetta vildi ég að kæmi fram, en það var ekki orðið við þessari ósk.