18.05.1984
Efri deild: 105. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6218 í B-deild Alþingistíðinda. (5638)

Um þingsköp

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Hæstv. forseti. Ég sé ástæðu til að þakka hæstv. forseta fyrir afgreiðslu þessara fjögurra mála, 2.–5., hv. 4. þm. Vestf., formanni iðnn., og iðnn. svo og hv. þingdeild fyrir frábæra afgreiðslu á þeim málum sem til míns friðar heyra, og verður nú að athuga, þótt ég hafi ekki átt þess kost að eiga sæti í Ed. alla mína þingtíð, að við 11. landsk. þm. skiptum á næsta kjörtímabili.