10.11.1983
Sameinað þing: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

Tilkynning frá ríkisstjórninni

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Samtök um kvennalista eiga ekki fulltrúa í fjh.- og viðskn. Nd. og okkur barst ekki vitneskja um þetta, a.m.k. ekki mér, fyrr en á þessum fundi. Við höfum því engar aðstæður til þess að orðlengja um þetta hér og nú. Ég vil lýsa því yfir að ég fagna þeim atburðum sem hér hafa orðið, en minni á það í leiðinni að betur má ef duga skal.