18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6231 í B-deild Alþingistíðinda. (5669)
Um þingsköp
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Eins og ég gat um áðan taldi ég nauðsynlegt að reyna að koma þessum stóru málum sem hér eru á dagskrá áfram til 3. umr. og einnig að reyna eins og hægt er að komast áfram með önnur dagskrármál. Ef ekki tekst að ljúka þeirri umr. verður henni haldið áfram á fundi sem væntanlega verður haldinn í fyrramálið. Ég vona að hv. þdm. geti sætt sig við þessa niðurstöðu því að ég veit ekki hvernig við eigum að komast áfram með málin ef við ætlum að láta þau stranda á atkvgr. Ég legg ríka áherslu á það og ég hef reynt að viðhafa þau vinnubrögð að afgreiða málin með atkvgr. strax og umr. er lokið. Ég tel að það séu hreinni og betri vinnubrögð þegar hægt er að koma því við. Ég vona því að hv. þdm. geti fallist á það. Hér er um að ræða stórt mál eins og ég sagði áðan. Ef okkur tekst ekki að ljúka umr. um 2. dagskrármálið og reyndar fleiri, t. d. 7. málið, munum við halda áfram með þá umr. í fyrramálið á þeim fundi sem væntanlega verður haldinn þá og hefur verið gert ráð fyrir að verði kl. 10. Að þessu sögðu vona ég að hv. þdm. sætti sig við þessi svör og að við getum nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Hv. 5. landsk. þm. er ekki enn sáttur og ætlar að minnast á þingsköp einu sinni enn.