18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6233 í B-deild Alþingistíðinda. (5674)

Um þingsköp

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Það virðist vera erfitt að fá hér fram bein svör við þeim spurningum sem spurt er og þá langar mig til þess að orða þessa spurningu, sem hér hefur verið lögð fram, beinna en áður hefur verið gert: Er hægt að lokinni afgreiðstu þess máls sem átti að fara að ganga til atkvæða að fá 2. mál á dagskrá til umr. og atkvgr. að henni lokinni?