18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6233 í B-deild Alþingistíðinda. (5677)

Um þingsköp

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki tefja þetta mál, hvorki með þessum hætti né öðrum, því að ég veit að slíkar umr. sem þessar flýta a. m. k. ekki fyrir því máli sem brýnt er að komi hér einmitt á dagskrá og verði tekið til umfjöllunar. Ég tek það aðeins fram út af orðum virðulegs forseta að þegar virðulegur forseti segir að þetta mál muni fá venjulega umfjöllun við 2. umr. hlýtur það að þýða umr. og atkvgr. um málið í hvaða formi sem það er.