18.05.1984
Efri deild: 106. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6235 í B-deild Alþingistíðinda. (5686)

Um þingsköp

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Hér hefur farið fram löng umr. um þingsköp. Ég vænti að henni sé nú lokið, en 6. mál verður nú tekið fyrir. Ég vil láta þess getið jafnframt, þar sem svo skammt er til fundarloka í kvöld, að 2. dagskrármálið verður fyrsta mál til umr. á dagskrá kl. 10 í fyrramálið, ef ekki tekst að hefja þá umr. núna fyrir kl. 7.