19.05.1984
Neðri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6331 í B-deild Alþingistíðinda. (5794)

167. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. og hefur skilað nál. á þskj. 924 og gert tvær brtt. Brtt. eru þær að við 1. gr. bætist í stafrófsröð þrír einstaklingar, sem lagt er til að fái ríkisborgararétt auk þeirra sem getið er í lagafrv., sem er þskj. 727. Nefndin mælir einróma með samþykkt frv. með þeim breytingum sem fluttar eru hér á sérstöku þskj. Fram skal tekið að Pálmi Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.