21.05.1984
Efri deild: 110. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6435 í B-deild Alþingistíðinda. (5954)

281. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Kolbrún Jónsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég skal vera stuttorð. Hv. síðasti ræðumaður taldi það undarlegt að tveir nm. hefðu ekki verið á fundi. Er eitthvað undarlegt við það að nm. mæti ekki á fund ef þeir eru ekki boðaðir? Ég vil algjörlega frábiðja mig því að hafa ekki mætt á fundi í vetur og mér finnst leitt að heyra svona yfirlýsingar.