21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6438 í B-deild Alþingistíðinda. (5970)

Um þingsköp

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Vegna þessarar fsp. hv. þm. vísa ég til framsöguræðu minnar með þessu frv. Ég lagði áherslu á að þetta væri réttindamál sem þyrfti að komast í gegnum afgreiðslu þingsins. Hins vegar get ég ekki ráðið við það hvað kemst hér í gegn af þeim málum sem maður leggur fram, en þetta mál var lagt fram nægilega snemma til þess að það fengi þinglega meðferð.