21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6438 í B-deild Alþingistíðinda. (5971)
Um þingsköp
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég hef yfirleitt orðið við þeim óskum og ekki þurft óskir til til að ég talaði stutt. En ég taldi mig raunar vita að hæstv. félmrh. legði áherslu á að þetta mál yrði afgreitt. Það eru þá aðrir sem ætla að koma í veg fyrir það og það er greinilegt að hv. þm. Þorsteinn Pálsson, formaður félmn., fyrrv. framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands, er sá aðilinn sem ætlar sér að ráða því að á þetta mál verður lagst þannig að það verði ekki afgreitt á þessu þingi.