21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6443 í B-deild Alþingistíðinda. (5979)

Um þingsköp

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil þakka forsetanum fyrir undirtektir hans við þeim óskum sem við höfum borið fram. Hins vegar vek ég athygli á því að hv. 1. þm. Suðurl., formaður félmn., hefur enn þá ekki svarað þeirri spurningu sem tveir þm. hafa borið til hans, m. a. hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir sem á sæti í félmn. Nd. Útilokað er að ljúka þessari umr. um þingsköp öðruvísi en að hv. þm. svari fyrir sig og geri grein fyrir því hvað hann hefur í hyggju í þessu efni.