21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6443 í B-deild Alþingistíðinda. (5985)

261. mál, lyfjalög

Frsm. (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. Nd. hefur tekið til meðferðar frv. til l. um breytingu á lyfjalögum nr. 49/1978. Á fund n. kom Ólafur Ólafsson landlæknir og veitti n. upplýsingar um málið og einnig um þær brtt. sem gerðar voru við frv. í Ed. en þær höfðu einmitt verið gerðar skv. athugasemdum frá landlækni. Nefndin varð sammála um að leggja til að frv. yrði samþykkt eins og það kom frá Ed. með þeim breytingum sem þar voru gerðar.