21.05.1984
Neðri deild: 101. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6444 í B-deild Alþingistíðinda. (5988)

115. mál, lífeyrissjóður bænda

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1062 um frv. til 1. um Lífeyrissjóð bænda. Nefndin hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það var afgreitt í Ed. Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir, sem sat á fundi nefndarinnar, er einnig samþykk afgreiðslu málsins. Undir þetta rita Páll Pétursson, Guðmundur Einarsson, Svavar Gestsson með fyrirvara, Kjartan Jóhannsson með fyrirvara, Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal.