21.05.1984
Neðri deild: 103. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6532 í B-deild Alþingistíðinda. (6064)

302. mál, atvinnuréttindi vélfræðinga

Frsm. meiri hl. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Samgn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Mál þetta barst n. frá Ed. um hádegi s. l. laugardag. Það gefur því auga leið að hún hefur haft mjög skamman tíma til að fjalla um málið. Við 1. umr. hér í Nd. um þetta mál og mál nr. 301, um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna, flutti hæstv. samgrh. svofellda yfirlýsingu:

„Það skal tekið fram við afgreiðslu frv. þessara að stéttarfélög skipstjórnarmanna og vélstjóra víða um landið óska eftir því að fá að koma fram með brtt. við lögin sem lagðar verði fram eigi síðar en 15. okt. á þessu ári.

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands mun skipa nefnd í málið sem skila mun einu sameiginlegu áliti um þau ákvæði í lögum þessum sem betur mættu fara.

Ég hef ákveðið að skipa nefnd nú í vor þar sem óskað verði eftir tilnefningu fulltrúa menntmrh., stýrimanna og Vélskólans í Reykjavík, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og útgerðaraðila til þess að gera till. um breyt. á þessum lögum þar sem m. a. verði stefnt að því að undanþágur verði ekki veittar þeim sem ekki hafa áður fengið undanþágu til skemmri eða lengri tíma.

Þeim mönnum, sem eftir breyt. laga þessara hafa ekki réttindi, verði ge:inn kostur á menntun í sínum landshluta og þannig að því stefnt að undanþáguveitingum verði hætt sem fyrst.“

Nm. urðu ekki sammála um afgreiðslu málsins. Steingrímur J. Sigfússon og Kristín Halldórsdóttir skila séráliti. Aðrir nm. leggja til að frv. þetta verði samþ. eins og það kom frá hv. Ed.

Karvel Pálmason skrifar undir nál. með fyrirvara og áskilur sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.

Þeir nm. sem undir nál. skrifa auk frsm. eru Stefán Valgeirsson formaður, með fyrirvara, Eggert Haukdal, Karvel Pálmason, með fyrirvara, og Stefán Guðmundsson, en nafn hans hefur fallið niður í prentun og leiðréttist það hér með.