21.05.1984
Neðri deild: 103. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6542 í B-deild Alþingistíðinda. (6075)

331. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Frsm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Þetta frv. fjallar eins og kunnugt er um það að Iðnaðarbankinn heyri undir þann ráðh. sem fer með bankamál og er flutt samhliða öðru frv. sem fjallar um Búnaðarbanka Íslands. Markmiðið með þessum frv. tveimur er að bankastarfsemin f landinu heyri undir einn ráðh.

Nefndin hefur fjallað um frv., segir í nál. á þskj. 979, og leggur til að það verði samþykkt. Undir það rita Páll Pétursson, Guðmundur Einarsson, Þorsteinn Pálsson, Svavar Gestsson, Friðrik Sophusson og Kjartan Jóhannsson.