22.05.1984
Efri deild: 112. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6550 í B-deild Alþingistíðinda. (6107)

305. mál, umboðsþóknun vegna gjaldeyrisviðskipta

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Hæstv. forseti. Í Nd. var skattheimta umboðsþóknunar gjaldeyrisviðskipta nokkuð hækkuð frá því sem samþykkt var hér í þessari hv. deild. Ég hef rætt við nm. í fjh.- og viðskn. og hefur enginn þeirra aths. fram að færa við þá breytingu, en einstakir nm. hafa að sjálfsögðu óbundnar hendur um afgreiðslu málsins í heild.