22.05.1984
Efri deild: 113. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6553 í B-deild Alþingistíðinda. (6123)

40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Mig langar að minna á að við erum nýbúin að upplifa í Nd. mjög svipað atvik. Frv. til lögræðislaga var þar samþykkt nánast án þess að menn áttuðu sig á því. Þar þótti ekki við hæfi að endurtaka atkvgr. þó að menn væru til þess reiðubúnir að endurskoða afstöðu sína. Ég tel það ekki heldur við hæfi nú þegar búið er að afgreiða málið.