22.05.1984
Efri deild: 113. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6554 í B-deild Alþingistíðinda. (6126)

40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Vegna þessa máls mun forseti gera fimm mínútna hlé á fundarstörfum til að athuga hvernig þetta mál stendur, en eins og strax kom fram eftir atkvgr. virtist þessi útkoma koma mönnum á óvart þó það verði að ætla að þm. hafi vitað um hvað þeir voru að greiða atkv. En ég mun nú gera fimm mínútna hté á fundarstörfum. — [Fundarhlé.]

Mál þetta hefur verið athugað og hlustað á segulband þar sem fram kom að tilmæli um endurtekningu á atkvgr. voru sett fram í beinu framhaldi af atkvgr. Venja mun að endurtaka atkvgr. ef einhver vafi er á að réttur vilji þm. komi fram. Með tilliti til þessa verður atkvgr. endurtekin.