22.05.1984
Sameinað þing: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6567 í B-deild Alþingistíðinda. (6172)

368. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Gunnar G. Schram:

Herra forseti. Ég vil færa fram þakkir til hv. þm. Stefáns Benediktssonar fyrir að hafa dregið til baka þá brtt. sem hann bar fram við till. á þskj. 991. Ég vil jafnframt bera fram þakkir til allshn. Sþ. fyrir góða afgreiðslu þessa mikilvæga máls og lýsa þeirri von minni að þær ráðstafanir til afnáms tekjuskatts í áföngum sem um er rætt í till. fái góðan framgang er þing kemur saman í haust.