14.11.1983
Efri deild: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (618)

81. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi mínum við þetta frv. og fagna því að það skuli vera komið til umr. Þetta er kunningi frá fyrra ári. Það eru sjálfsagt ýmsir þættir sem við þyrftum að skoða og ræða í góðum hóp, fá sérfræðinga til þess að gefa okkur upplýsingar. Ég tel þess vegna ekki mikla ástæðu til þess að ræða þetta frv. nú, en vænti þess að við gefum okkur tíma til þess að fara vel yfir þetta mál í n. og leita þar upplýsinga og stuðnings. Ég sem sagt lýsi ánægju minni yfir því að þetta frv. skuli vera komið hingað.